Stjarnan hefur staðfest komu Árna Vilhjálmssonar.
Árni, sem er 32 ára gamall, spilaði síðast í Sádi-Arabíu, þar sem eiginkona hans Sara Björk Gunnarsdóttir lék, en hann hefur síðustu ár einnig spilað í Frakklandi, Ítalíu, Litháen og Úkraínu í atvinnumennsku.
Árni og Sara fluttu, ásamt syni sínum, heim til Íslands á dögunum og gekk hún í raðir Hauka. Í kjölfarið fóru miklar vangaveltur af stað um hvar Árni myndi skrifa undir.
Árni er auðvitað uppalinn Bliki og spilaði síðast með liðinu árið 2021. Var hann orðaður við endurkomu en er hann nú mættur í Stjörnuna, sem er með mikil gæði í fremstu stöðum og bætist Árni í þann hóp.
Stjarnan hefur valdið vonbrigðum í Bestu deildinni það sem af er. Þjálfaraskipti urðu nýlega, þegar Jón Þór Hauksson tók við af Jökli Elísabetarsyni.
Liðið vann frækinn sigur á Víkingi Götu í 1. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar í gær. Liðin mætast í Færeyjum eftir viku.
Árni verður einmitt gjaldgengur með Stjörnunni á leikdegi,16. júlí.