Það er nokkur óvissa um þátttöku miðvarðarins Marc Guehi fyrir leik Englands við Noreg í 8-liða úrslitum HM annað kvöld.
Guehi tognaði aftan í læri í 3-2 sigri Englands á Mexíkó í 16-liða úrslitunum. Það var vonast til að um vöðvaþreytu væri að ræða en kom svo í ljós að um er að ræða væga tognun.
Guehi vonast þó enn til að vera með, en það fer eftir því hvort hann nái að æfa í dag.
Betri fréttir bárust af Reece James, sem sneri aftur til æfinga í gær eftir að hafa glímt meiðsli aftan í læri og gæti verið klár í slaginn á morgun.
Hins vegar missti Declan Rice af annarri æfingunni í röð vegna veikinda. Enska liðið hefur gripið til ráðstafana til að koma í veg fyrir að veikindin breiðist út innan hópsins.
England hefur þegar misst Jarell Quansah í tveggja leikja bann og því gætu John Stones, Dan Burn eða Trevoh Chalobah þurft að fylla skarð Guehi ef hann verður ekki leikfær.