433

Afar falleg saga - Notaði sparnaðinn til að fara með afa sínum á HM en svo gerðist þetta

Mynd

21 árs gamall enskur stuðningsmaður fékk óvænta gjöf eftir að hafa varið öllum sparnaði sínum til að að fara með afa sínum á HM.

Jacob Allmendinger notaði um 10 þúsund pund, sem hann hafði safnað fyrir útborgun á húsnæði, til að fara með 80 ára afa sínum, Geoff Golliker, á heimsmeistaramótið.

Þeir ferðuðust saman til New York, Atlanta og Mexíkóborgar og sáu England meðal annars leggja Mexíkó 3-2 að velli á Azteca-leikvanginum.

Saga þeirra vakti mikla athygli og fyrirtækið MetaWin hét því að endurgreiða Jacob allan kostnaðinn ef England ynni Kongó. Eftir 2-1 sigur Englendinga stóð fyrirtækið við loforðið.

„Ég trúði þessu varla fyrr en ég leit á bankareikninginn minn. Ég var algjörlega í sjokki,“ sagði Allmendinger.

Hann segist ætla að leggja peninginn aftur fyrir í bili.

„Við gætum farið á EM, ég gæti keypt húsnæði. Allt er mögulegt. Það er frábært að hafa valkosti.“

Allmendinger segist þó aldrei hafa séð eftir ákvörðuninni.

„Ég get alltaf unnið mér inn meiri peninga, en ég fæ aldrei aftur tækifæri til að fara á HM með afa mínum.“