433

Tjáir sig um málið sem margir velta fyrir sér

Mynd
Keir Starmer og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

Forsætisráðherra Bretlands, Keir Starmer, hefur gefið í skyn að aukafrídagur gæti verið gefinn almenningi ef enska landsliðið verður heimsmeistari.

England mætir Noregi í 8-liða úrslitum annað kvöld og fari liðið alla leið verður úrslitaleikurinn leikinn sunnudaginn 19. júlí í New Jersey.

Þegar Starmer var spurður hvort Englendingar fengju aukafrí ef liðið ynni mótið svaraði hann brosandi:

„Varðandi frídaginn vil ég ekki jinxa neitt, en spurðu mig aftur ef við komumst í úrslitaleikinn,“ sagði hann.

Samkvæmt heimildum breskra miðla hefur verið rætt um að slíkur frídagur yrði föstudaginn 24. júlí, ef England lyftir bikarnum.

Áður en það kemur til þarf lið Thomas Tuchel þó að vinna bæði 8-liða úrslitin, undanúrslitin og sjálfan úrslitaleikinn.