433

Tekjur OnlyFans-stjörnu ruku skyndilega upp úr öllu valdi - Þetta er ástæðan

Mynd
Skylar Mae.

OnlyFans-stjarnan Skylar Mae segir HM í knattspyrnu hafa leitt til mettekna hjá sér og að hún hafi fengið óvenjulegar beiðnir frá stuðningsmönnum landsliða víðs vegar að úr heiminum..

HIn bandaríska Mae, sem segist þéna um eina milljón dollara á mánuði á OnlyFans, segir að stór hluti sérpantananna tengist keppninni. Að hennar sögn greiða margir fyrir myndbönd þar sem hún klæðist treyjum ákveðinna landsliða eða gerir grín að erkifjendum þeirra.

Ein beiðni hafi þó staðið upp úr. Kom hún frá portúgölskum stuðningsmanni sem vildi lítilsvirða Lionel Messi.

Mae bætti við að hún hefði aldrei búist við því að eyða sumrinu í að kaupa landsliðstreyjur og taka að sér sérpantanir sem tengjast HM, en að mótið hefði engu að síður leitt til tekjuhæsta mánaðar ferils hennar á OnlyFans.