433

Sögulegur dagur Vestra en Qarabag reyndist of stór biti

Mynd
Getty Images

Vestri spilaði sinn fyrsta Evrópuleik í sögunni gegn Qarabag í Aserbaídsjan í dag.

Það var vitað fyrir leik að Qarabag, sem fór í útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu á síðustu leiktíð, yrði ansi erfiður andstæðingur fyrir Lengjudeildarliðið og baráttuglaðir Ísfirðingar gátu ekki komið í veg fyrir þriggja marka tap í dag.

Það var markalaust þar til eftir hálftíma leik, en þá kom Zakaria Sawo heimamönnum yfir. Abdellah Zoubir tvöfaldaði forskotið fyrir hlé.

Qarabag innsiglaði svo 3-0 sigur í restina með marki Renaldo Cephas. Liðin mætast í Laugardalnum eftir viku og verkefni Vestramanna ærið.

Detti Vestri úr leik þar, sem er ansi líklegt, fer liðið hins vegar í 2. umferð Sambandsdeildarinnar og Evrópuævintýrinu því hvergi nærri lokið.