Framtíð Paul Pogba hjá Monaco er óljós eftir erfitt fyrsta tímabil hans hjá félaginu.
Pogba gekk til liðs við Monaco síðasta sumar eftir að hafa tekið út lyfjabann, sem var stytt úr fjórum árum í 18 mánuði. Hann skrifaði undir tveggja ára samning en meiðsli settu strik í reikninginn. Frakkinn byrjaði aðeins einn leik og spilaði samtals 115 mínútur í sex leikjum á tímabilinu.
Framkvæmdastjóri Monaco, Thiago Scuro, segir félagið meta Pogba mikils en útilokar ekki að hann fari strax í sumar.
„Við berum mikla virðingu fyrir Paul. Væntingarnar voru aðrar en raunin varð. Við munum fylgjast með hvernig honum gengur á undirbúnignstímabilinu og síðan taka ákvörðun. Hann gæti verið áfram, en hann gæti líka farið.“