Aurelien Tchouameni virðist ætla að binda enda á orðróma um brottför frá Real Madrid en samkvæmt helstu miðlum hefur hann komist að samkomulagi við félagið um nýjan samning til ársins 2031.
Þar með virðist ljóst að Manchester United missir af þessu skotmarki sínu. United var sagt tilbúið að leggja fram tilboð upp á yfir 100 milljónir evra, en Real Madrid hafði engan áhuga á að selja Frakkann.
Jose Mourinho, sem er tekinn við Real Madrid á nýjan leik, lagði samkvæmt fréttum mikla áherlsu á að miðjumaðurinn yrði áfram.
United horfir því annað og félagið er þá að landa Andrey Santos frá Chelsea á um 50 milljónir punda.