Í vikunni var haldinn styrktarleikur á Selfossi þegar heimamenn tóku á móti venslaliðinu Árborg í bikarkeppni neðri deilda. Alls söfnuðust yfir sex milljónir króna.
Styrktarleikurinn var til heiðurs Helgu Guðmundsdóttur, sem lést eftir baráttu við krabbamein, og rann allur ágóði til til heimahjúkrunar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi.
Aron Fannar Birgisson, sonur Helgu, skoraði einmitt eitt mark Selfyssinga í leiknum, sem fór 5-0.
„Vá, vá, 6,4 milljónir króna söfnuðust í kvöld í styrktarleiknum í knattspyrnu hér á Selfossi en allur ágóði rennur til heimahjúkrunar HSu á Selfossi. Maður leiksins var Aron Fannar Birgisson, sem skoraði m.a. glæsilegt mark en hann er sonur Helgu Guðmundsdóttur heitinnar en um styrktarleik var að ræða á milli Selfoss og Árborgar til heiðurs Helgu og óskaði hún og fjölskylda hennar að allur ágóði leiksinis rynni til,“ skrifaði fjölmiðlamaðurinn ástsæli Magnús Hlynur Hreiðarsson um málið.