Bjarni Helgason, íþróttablaðamaður á Morgunblaðinu, gagnrýnir Cristiano Ronaldo og segir hann hafa kostað landsliðsþjálfara Portúgals starfið á HM.
Portúgal féll úr leik í 16-liða úrslitum með tapi gegn Spáni. Ronaldo kom með lítið að borðinu á mótinu og hélt til að mynda Goncalo Ramos á bekknum í leiknum gegn Spáni, þrátt fyrir að sá síðarnefndi hafi verið fullur sjálfstrausts eftir að hafa skorað sigurmark 32-liða úrslitanna.
„Ronaldo var klárlega bleiki fíllinn í herberginu þegar kom að portúgalska liðinu á mótinu í ár. Leikmannahópurinn var líklega einn best mannaði hópurinn á HM en þrátt fyrir það fann liðið aldrei taktinn.
Ronaldo gerði lítið til þess að hjálpa liðsfélögum sínum þegar kom að því að pressa mótherjann og hljóp minnst allra leikmanna liðsins á mótinu,“ skrifar Bjarni í pistli sínum í Morgunblaðið.
„Önnur stórstjarna, sem heitir Lionel Messi, hefur á sama tíma borið heimsmeistara Argentínu á herðum sér á mótinu. Hann er markahæstur á mótinu með átta mörk og eina stoðsendingu. Hann hefur búið til 13 marktækifæri fyrir liðsfélaga sína.
Þjálfari Portúgals hafði ekki kjarkinn til þess að taka Ronaldo út úr liðinu og það kostaði hann starfið. Ronaldo hafði engan áhuga á því að setjast á bekkinn heldur og það reyndist bæði honum og liðinu hans dýrt.“
Bjarni segir þá að Ronaldo hafi tekið eigin hagsmuni fram yfir hagsmuni liðsins og vonast til að hann kalli þetta nú gott með landsliðinu.
„Hans verður alltaf minnst sem eins besta fótboltamanns sögunnar en frammistaða hans á síðustu stórmótum er farin að draga ansi mikið úr fyrri afrekum hans. Vonandi kallar hann þetta gott núna svo hans verði ekki minnst fyrir eitthvað allt annað en fyrri afrek sín á vellinum.“