Rafael Benitez segist vera opinn fyrir því að taka við skoska landsliðinu eftir brottför Steve Clarke.
Benitez, sem vann Meistaradeild Evrópu með Liverpool árið 2005 og hefur þjálfað mjög víða, sagði í viðtali við Talksport að hann hefði fylgst með Skotum á HM í sumar og væri tilbúinn að taka við landsliði ef réttu forsendurnar væru fyrir hendi.
„Ég er opinn fyrir landsliðsþjálfun. Það er öðruvísi starf og spennandi áskorun,“ sagði Benitez, en bætti við að hann þyrfti að hafa réttu verkfærin til að ná árangri.
Benitez telur Skota hafa náð því fram sem raunhæft var á HM, þar sem liðið féll úr leik í riðlakeppninni eftir sigur á Haítí og töp gegn Marokkó og Brasilíu.