Það er enn mikil óvissa um framtíð Bradley Barcola hjá Paris Saint-Germain. Ensku stórliðin Arsenal og Liverpool fylgjast náið með stöðunni.
Kantmaðurinn hefur verið orðaður við ensku félögin í allt sumar, enda bæði að leita að styrkingu í stöðuna.
Hinn 23 ára gamli Barcola er ekki fastamaður í liði PSG og talið er að hann sé opinn fyrir því að horfa í kringum sig.
Evrópumeistararnir vilja þó helst halda Barcola og hyggjast bjóða honum nýjan samning að loknu heimsmeistaramótinu, þar sem hann spilar með franska landsliðinu.
Hafni Barcola samningsboðinu er talið að PSG muni hlusta á tilboð í leikmanninn, en núgildandi samningur hans rennur út eftir tvö ár.
Það má því búast við svörum um framtíð Barcola síðar í sumar.