Bjarni Guðjónsson, knattspyrnugoðsögn og sparkspekingur í Stúkunni á Sýn, útilokar ekki að frekari þjálfarabreytingar verði á karlaliði Vals áður en tímabilinu lýkur.
Valur rak Hermann Hreiðarsson á dögunum og aðstoðarþjálfari hans, Chris Brazell, hefur verið ráðinn út tímabilið. Að því loknu tekur Halldór Árnason, sem gerði Breiðablik að Íslandsmeisturum 2024, við liðinu til frambúðar.
Valur tapaði fyrsta leiknum undir stjórn Brazell, 1-0 gegn ÍBV. Frammistaðan var ekki sannfærandi og Valur er í fimmta sæti með 19 stig, 21 stigi frá toppliði Víkings.
„Ef þetta heldur áfram svona, ætlar Dóri þá að sitja upp í stúku og stýra Val úr fjarska og leyfa þeim að fara niður í neðri hlutann? Þeir eru ekki sloppnir við fall. Þeir eru með 19 stig.“ sagði Bjarni í nýjasta þætti Stúkunnar.
„Það er þjálfari (Halldór) tekinn við liðinu og hann er pottþétt farinn í það að reyna að stýra liðinu. Það er félagsskiptagluggi að opna og annar gluggi ekki svo langt undan. Leikmenn eru að renna út á samningi og svona. Það getur enginn sagt mér að nýr þjálfari Vals sé ekki farinn að stýra liðinu, eða því sem er hægt úr fjarska.
Þetta var mjög dapurt og ef árangurinn er ekki betri en þetta er ég viss um að Valsmenn sitji ekki á höndum sér og leyfi liðinu að fara niður þennan veg.“