Samúel Kári Friðjónsson, leikmaður Vals, gekk berserksgang eftir tap gegn ÍBV í Vestmannaeyjum um helgina.
Samúel, sem gekk í raðir Vals í vor frá Stjörnunni, var samkvæmt Innkastinu á Fótbolta.net vel pirraður eftir tapið.
Á hann að hafa brotið hurð og vaðið í Twana Khalid Ahmed dómara. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem skapið hleypur með Samúel í gönur.
„Svo var allt settlað, beðist afsökunar og þeir ætla að borga hurðina,“ sagði Valur Gunnarsson sparkspekingur jafnframt um málið í Innkastinu.