433

Íslenska landsliðskonan frá Spáni til Englands

Mynd
Mynd: Newcastle

Landsliðskonan Hildur Antonsdóttir er gengin í raðir Newcastle í ensku B-deildinni.

Hildur, sem er þrítug, kemur frá spænska liðinu Madrid CFF í efstu deild Spánar og kveðst spennt fyrir nýrri áskorun.

Miðjumaðurinn hefur einnig spilað með Fortuna Sittard á atvinnumannaferlinum og lék hún þá með Val og Breiðabliki hér á landi á sínum tíma.

Newcastle hafnaði um miðja deild á síðustu leiktíð.