433

Amorim vill halda í fertugan Modric

Mynd
Getty Images

Hinn fertugi Luka Modric gæti skrifað undir nýjan samning við AC Milan.

Modric gekk í raðir Milan í fyrra eftir afar farsæla dvöl hjá Real Madrid og skrifaði undir eins árs samning.

Sá samningur er runninn út en Ruben Amorim, nýr stjóri Milan, vill ólmur hafa króatíska miðjumanninn hjá sér í vetur.

„Ég vil að Modric verði áfram. Ég sæki hann sjálfur ef þess þarf, ég vil bara að hann verði með okkur á komandi tímabili,“ sagði Amorim um málið.