Ruben Amorim er vægast sagt sáttur við að vera orðinn knattspyrnustjóri ítalska stórliðsins AC Milan.
Hann tók við eftir síðustu leiktíð. Er þetta fyrsta stjórastarf Portúgalans eftir dvölina hjá Manchester United, þar sem hlutirnir gengu ekki upp.
„Ég er svo glaður með að vera hér. Mig langar að vinna titla, ég vil taka það fram,“ sagði Amorim meðal annars um fyrstu dagana á Ítalíu.
„Ég er þegar orðinn ástfanginn af æfingasvæðinu. Þessi staður er sérstakur, mér finnst ég vera kominn heim,“ sagði hann enn fremur.