Íslandsmeistarar Víkings unnu mikilvægan 1-0 sigur á ungversku meisturunum í Gyor í fyrri leik liðanna í 1. umferð undankeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.
Spilað var í Víkinni og heimamenn voru sterkari aðilinn. Það leit þó út fyrir að markalaust jafntefli yrði niðurstaðan þegar Nikolaj Hansen kom boltanum í netið í uppbótartíma.
Sigurinn hefði getað orðið stærri en lokatölur urðu 1-0. Liðin mætast í Ungverjalandi í næstu viku og sigur því hvergi nærri í höfn.