433

Þetta hafa veðbankar að segja um möguleika Víkings í kvöld

Mynd
Mynd: DV/KSJ

Víkingur mætir ungversku meisturunum í Gyor í 1. umferð undankeppni Meistaradeildarinnar í kvöld. Veðbankar telja Íslandsmeistarana ívið sigurstranglegri.

Víkingur var óheppið með drátt, en ætti að eiga fínan möguleika gegn Gyor á sínum degi. Til mikils er að vinna í 1. umferðinni. Sigur þar veitir að minnsta kosti umspilseinvígi um sæti í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar á seinni stigum undankeppnanna. Tapliðið þarf að fara í 2. umferð Sambandsdeildarinnar og vinna þrjú einvígi til að komast í deildarkeppni.

Víkingur komst í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar fyrir tveimur árum og fór að lokum alla leið í útsláttarkeppnina veturinn eftir. Liðið ætlar sér stóra hluti í Evrópukeppni í ár einnig.

Fyrri leikurinn í kvöld fer fram á Víkingsvelli og þykja heimamenn aðeins sigurstranglegri. Stuðull á sigur Víkings er 2,23 á Lengjunni en 2,48 á sigur Gyor. Stuðull á jafntefli er 3,46.

Seinni leikurinn fer fram í Ungverjalandi í næstu viku. Mikilvægt er að Víkingur fari með gott veganesti þangað.