Það var hart tekist á í setti RÚV í kvöld þegar leikur Argentínu og Egyptalands í 16-liða úrslitum var gerður upp.
Lionel Messi og félagar unnu magnaðan 3-2 endurkomusigur í dag eftir að hafa lent 0-2 undir. Í stöðunni 0-1 var mark dæmt af Egyptum vegna brots hinum megin á vellinum.
„Það er ekkert að þessu marki. Þetta er 100 metra frá marki og svo skora þeir eitt besta mark mótsins. Af hverju í ósköpunum létu dómararnir markið ekki standa, er það af því Messi er mögulega á leið út?“ sagði lýsandinn ástsæli Hörður Magnússon á RÚV.
Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson og landsliðsgoðsögnin Eiður Smári Guðjohnsen voru honum heldur ósammála.
„Það skiptir ekki máli hvort það séu 100 metrar eða 2 metrar. Þú getur fært rök fyrir að þetta sé aukaspyrna,“ sagði Arnar.
„Er ég með fulltrúum FIFA hérna?“ sagði Hörður þá, fremur léttur í bragði enn sem komið er.
Eiður Smári tók til máls.
„Það má alveg færa rök fyrir því að þetta mark hefði mátt standa, en svo komast þeir í 2-0. Fengu Argentínumenn einhverja hjálp við að skora sín mörk? Er það ekki Egyptum að kenna að fá á sig þrjú mörk á 12 mínútum?“
Hörður sagði þá að það hefði mátt skoða tvö sambærileg atvik og í markinu sem var dæmt af Egyptum í aðdraganda sigurmarks Argentínu.
„Þeir hafa ekki metið það sem brot. Ég neita að trúa einhverjum samsæriskenningum. Þetta virkar ekki þannig,“ sagði Arnar þá.
Hiti færðist í leikinn og Hörður benti á að fyrir skömmu hafi forseti FIFA, eftir símtal frá Donald Trump Bandaríkjaforseta, fengið banni lykilmanns bandaríska landsliðsins hnekkt.
„Heyrðu, á þessu móti erum við búnir að horfa á forseta FIFA fella niður leikbann.“
Arnar sagði þetta útilokað og kom Gianni Infantino til varnar.
„Það er ekki forseti FIFA sem fellir niður leikbann, það eru nefndir hjá FIFA og 600 starfsmenn og stjórnir. Þegar við erum komnir í þessar samsæriskenningar erum við að downgrade-a leikinn,“ sagði hann.
„Downgrade-a leikinn? FIFA hefur alveg séð um það sjálft,“ svaraði Hörður um hæl, áður en skipt var um umræðuefni.