Maddy Cusack var „almennt lygin“, að sögn fyrrverandi þjálfara hennar, Jonathan Morgan. Ummælin féllu við rannsókn á andláti Cusack fyrir dánardómstóli í Chesterfield á mánudag.
Cusack, sem lék með Sheffield United, fannst meðvitundarlaus á heimili fjölskyldu sinnar í september árið 2023 og var úrskurðuð látin sama dag. Í kjölfarið lagði fjölskylda hennar fram formlega kvörtun á hendur Morgan til enska knattspyrnusambandsins, þar sem hún taldi framkomu hans hafa haft alvarleg áhrif á líðan leikmannsins.
Við rannsóknina kom fram að Morgan hefði í skýrslu sinni til enska knattspyrnusambandsins sagt að Cusack „hafi almennt logið mikið“. Hann stóð við þau orð fyrir dómi en sagði að hún hefði ekki sagt fjölskyldu sinni alla söguna um samskipti þeirra.
„Ég tel að staðreyndir hafi ekki verið settir fram á réttan hátt. Hún sleppti mörgu sem ég hafði stutt hana með,“ sagði Morgan og bætti við að hann teldi að fjölskyldan hefði aðeins fengið einhliða upplýsingar.
Áður hafði móðir Cusack lýst Morgan sem helsta óvini dóttur sinnar. Hún sagði hann ítrekað hafa gert athugasemdir við þyngd hennar og samband hennar við liðsfélagann Grace Riglar í þeim tilgangi að brjóta hana niður og halda stjórn sinni yfir henni.
Morgan hafnaði þeim ásökunum alfarið. Hann sagði að hann hefði aldrei öskrað á Cusack og að ummæli hans um að hún væri „of vöðvastælt“ hefðu eingöngu snúið að því hvernig hún hentaði leikstíl liðsins. Hann sagði einnig að hann hefði tekið eftir því sumarið 2023 að hún væri óvenju þung í skapi og því haft samband við lækni félagsins þar sem hann taldi að eitthvað amaði að henni.
Rannsókn á andláti Cusack heldur áfram.