Bergsveinn Ólafsson, gjarnan kallaður Beggi Ólafs, áhrifavaldur, sálfræðingur og fyrirlesari, birti myndband á Instagram þar sem hann ræðir norsku stórstjörnuna Erling Braut Haaland.
Haaland hefur gjörsamlega slegið á gegn með Noregi á HM, þar sem liðið er komið í 8-liða úrslit eftir að hafa unnið Brasilíu á sunnudag. Framherjinn skoraði tvö mörk í þeim leik og hefur alls skorað sjö mörk í fjórum leikjum á mótinu.
Beggi hrósaði Haaland í hástert í umræddu myndbandi og fór um leið aðeins yfir þær ástæður sem gætu legið að baki velgengni hans.
„Ég er með „man crush“ á Haaland. Það er af því að hann er að sigra, en ekki sigra eins og þið haldið, að skora mörkin, leiða þjóð sína, eiga fallega kærustu, vera með fallegt ljóst hár, heldur af því að hann er að skemmta sér,“ sagði Beggi meðal annars.
„Sjáið þennan mann. Hann er á hátindi ferilsins og það er mikil pressa á honum, en hann er að skemmta sér og hlæja. Ég held ég hafi ekki séð neinn sem gengur svona vel skemmta sér svona mikið, á meðan pressan er svo mikil.
Ég veit að hann tekur ferli sínum mjög alvarlega, en ekki of. Hann brosir alltaf og ég held að þess vegna sé hann að sigra,“ sagði hann enn fremur, en myndbandið er hér að neðan.
Beggi er með vel yfir 300 þúsund fylgjendur á Instagram og talar hann þar til útlendinga sem Íslendinga, en hann er búsettur í Los Angeles. Myndbandið um Haaland hefur vakið mikla athygli.