433

Messi hélt ekki aftur af tárunum eftir ótrúlega endurkomu Argentínu - Myndband

Mynd

Lionel Messi gat ekki haldið aftur af tárunum eftir stórkostlegan 3-2 endurkomusigur Argentínu á Egyptum í 16-liða úrslitum HM.

Argentína var 2-0 undir þegar um stundarfjórðungur var eftir og virtist draumur Messi um annan heimsmeistaratitil í röð vera á enda. 

Liðið svaraði hins vegar með mögnuðum endaspretti. Cristian Romero minnkaði muninn, Messi jafnaði metin og Enzo Fernandez skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.

Messi skoraði sitt áttunda mark á mótinu og er nú einn markahæstur, einu marki á undan Kylian Mbappé og Erling Haaland.

Eftir lokaflautið var Messi sýnilega snortinn og felldi tár þegar ljóst var að Argentína færi áfram í 8-liða úrslit eftir alla þessa dramatík.