Manchester United hefur áhuga á Andrey Santos hjá Chelsea samkvæmt blaðamanninum Ben Jacobs.
Brasilíumaðurinn vill fá stærra hlutverk en hann fær hjá Chelsea og horfir því í kringum sig. United er einmitt í leit að styrk á miðsvæðið.
Jacobs segir þó að Newcastle fylgist einnig með hinum 22 ára gamla Santos og því gæti orðið samkeppni um hann.
Talið er að Chelsea vilji fá um 50 milljónir punda fyrir Santos, sem gekk í raðir félagsins árið 2023 og er samningsbundinn því í fjögur ár til viðbótar.