Fulham hefur staðfest ráðninguna á Alvaro Arbeloa sem nýjum stjóra liðsins. Hann gerir þriggja ára samning.
Fulham leitaði að eftirmanni Marco Silva eftir að hann hafnaði nýjum samningi og sneri aftur til heimalands síns til að taka við Benfica.
Það hefur legið í loftinu að sá maður yrði Arbeloa og nú hefur það verið staðfest.
Arbeloa hefur þjálfað yngri lið Real Madrid og aðalliðið um skeið. Talið er að Jose Mourinho, sem er tekinn við Real Madrid á nýjan leik, hafi mælt með honum við Fulham.
Arbeloa lék með Liverpool og West Ham á leikmannaferlinum og þekkir því vel til enska boltans.