433

Kemur kollega sínum til varnar eftir þungar ásakanir Trump

Mynd

FIFA hefur komið dómaranum Raphael Claus til varnar eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði hann vafasaman í kjölfar rauða spjaldsins sem Folarin Balogun fékk í leik Bandaríkjana við Bosníu á HM á dögunum.

Trump gagnrýndi Claus harðlega og hélt því fram að brot framherjans hefði aldrei átt að leiða til brottvísunar. Forsetinn kom síðar að því að leikbanni Balogun, sem hann átti að taka út vegna rauða spjaldsins, var frestað um ár. Vakti það eðlilega hörð viðbrögð.

Pierluigi Collina, formaður dómaranefndar FIFA, brást við gagnrýni Trump á kollega sinn með yfirlýsingu þar sem hann lýsti yfir fullum stuðningi við Claus.

„Raphael Claus er einn fremsti dómari heims og nýtur fulls trausts FIFA. Hann hefur ítrekað sýnt fram á að hann vinnur af mikilli fagmennsku og heilindum,“ sagði Collina.

Eftir símtal Trump í Gianni Infantino, forseta FIFA, fékk Balogun að spila gegn Belgíu í 16-liða úrslitum HM í nótt. Hann gat þó ekki komið í veg fyrir 1-4 tap.