Newcastle er nálægt því að ganga frá kaupum á 18 ára gamla miðjumanninum Sean Steur frá Ajax.
Newcastle hefur svigrúm til að styrkja leikmannahópinn eftir sölu á Sandro Tonali til Tottenham fyrir 100 milljónir punda og er Steur einn af þeim sem félagið ætlar sér að kaupa, með það fyrir augum að hann gæti orðið lykilmaður í framtíðinni.
Steur skrifaði undir nýjan samning við Ajax síðasta sumar sem gildir til ársins 2028, en samkvæmt fréttum gæti hollenska félagið ákveðið að selja hann nú frekar en að hætta á að markaðsvirði hans lækki á komandi ári.
Miðjumaðurinn lék sinn fyrsta aðalliðsleik í desember og festi sig fljótt í sessi í byrjunarliðinu. Samkvæmt Opta var hann meðal bestu ungu miðjumanna hollensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð.