433

Greina frá verðmiðanum sem United þyrfti að ganga að

Mynd
Aurelien Tchouameni. Mynd/Getty

Aurelien Tchouameni er orðaður við Manchester United þessa dagana. Hann verður þó ekki ódýr á markaðnum í sumar.

Sögusagnir hafa verið á kreiki um að United íhugi að reyna að kaupa Tchouameni. Ekki er víst hversu mikið er til í því en spænska blaðið AS slær því allavega upp í dag að það myndi kosta enska félagið um 85 milljónir punda að klófesta Frakkann.

Tchouameni er samningsbundinn Real Madrid til 2028 og hefur verið orðaður við brottför. Miðað við þetta fá hugsanlegir kaupendur þó engan afslátt.

United ætlar sér að styrkja miðjuna vel í sumar og rímar meintur áhugi á Tchouameni við það.