Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, býst við því að Reece James verði klár í slaginn þegar England mætir Noregi í 8-liða úrslitum HM á laugardag.
James hefur misst af síðustu þremur leikjum Englands vegna meiðsla aftan í læri en vonir standa til um að hann geti tekið þátt í æfingum að fullu á næstu dögum.
Endurkoma hans kæmi á góðum tíma fyrir Englendinga, enJarell Quansah var rekinn af velli gegn Mexíkó og tekur út leikbann í 8-liða úrslitunum.
James er fyrsti kostur Tuchel í hægri bakvarðarstöðuna þegar hann er heill.