433

Fallegt framtak uppeldisfélagsins til styrktar Ingvari og fjölskyldu

Mynd
Getty Images

Njarðvík og Grindavík mætast í grannaslag í Lengjudeild karla á föstudag. Munu liðin leika í sérstökum treyjum frá Macron sem síðar fara á uppboð til styrktar Ingvars Jónssonar.

Ingvar, sem er á mála hjá Íslandsmeisturum Víkings, greindist nýlega með krabbamein. Hann er uppalinn Njarðvíkingur. 

Nánari upplýsingar frá Njarðvík um þetta fallega framtak:

Nágrannaslagur á föstudaginn! 

Við fáum Grindavík í heimsókn á JBÓ völlinn okkar næsta föstudag í 13. umferð Lengjudeildarinnar

Epoxy golf og Rafholt bjóða öllum frítt á leikinn og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir!

Í leiknum er fyrirhugað að bæði lið Njarðvíkur og Grindavíkur leika í sérstökum Macron treyjum sem verða einungis notaðar í þessum leik og síðar boðnar upp í styrktarskyni fyrir Ingvar Jónsson og fjölskyldu. - Nánar um það síðar.

Ingvar er einmitt einn af eigendum Macron Suðurnes.

Við hvetjum alla sem hafa tök á að leggja Ingvari og fjölskyldu lið með að leggja inná

Reikning: 0147-05-400085 og KT: 710192-2359

Áfram Njarðvík og Áfram Ingvar! 

Facebook-síða Njarðvíkur