433

Evrópuævintýri íslensku liðanna hefst

Mynd

Íslensku liðin hefja leik í Evrópukeppnunum þremur í vikunni

Víkingur R. tekur á móti Györ frá Ungverjalandi í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Leikurinn fer fram á Víkingsvelli og hefst hann klukkan 19. Seinni leikur liðanna fer fram ytra þriðjudaginn 14. júlí klukkan 17.

Vestri hefur leik í Evrópudeildinni þegar þeir heimsækja Qarabag frá Aserbaídsjan fimmtudaginn 9. júlí klukkan 16. Vestri tekur svo á móti Qarabag á Avis vellinum í Laugardal fimmtudaginn 16. júlí klukkan 20.

Stjarnan hefur leik í Sambandsdeild Evrópu fimmtudaginn 9. júlí þegar þeir taka á móti Víkingi frá Götu í Færeyjum. Leikurinn hefst klukkan 19. Stjarnan heldur svo til Færeyja og mætir Víkingi fimmtudaginn 16. júlí klukkan 17.

Valur er fjórða íslenska liðið í Evrópukeppni þetta árið en liðið sleppur við að spila í 1. umferð þar sem það endaði í öðru sæti Bestu deildarinnar í fyrra.

Meistaradeild Evrópu

Evrópudeildin

Sambandsdeild Evrópu