Rafael Leao er opinn fyrir því að ganga til liðs við Tottenham í sumar samkvæmt ítölskum miðlum.
Leao hefur verið sterklega orðaður við brottför frá AC Milan og gæti framtíð hans skýrst á næstunni þar sem kappinn hefur lokið leik með Portúgal á HM.
Þó Leao hafi sýnt góða spretti með Milan er félagið opið fyrir því að selja hann ef tilboð upp á rúmar 50 milljónir punda berst.
Tottenham gæti reitt fram þá upphæð, en félagið hefur farið mikinn á félagaskiptamarkaðnum í sumar.
Leao á sér draum um að spila í ensku úrvalsdeildinni og gæti stokkið á boðið um að fara til Norður-Lundúna.