Belgía er komin í 8-liða úrslit heimsmeistaramótsins eftir sannfærandi sigur á gestgjöfunum í Bandaríkjunum í nótt.
Belgar voru mun sterkari aðilinn. Charles De Ketelaere kom þeim yfir á 9. mínútu. Malik Tillman jafnaði hins vegar eftir rúman hálftíma leik en Ketelaere var aftur á ferðinni með mark skömmu síðar.
Yfirburðirnir héldu áfram og eftir tæpan klukkutíma leik tvöfaldaði Hans Vanaken forskot Belga. Romelu Lukaku kom inn á sem varamaður og innsiglaði 1-4 sigur í uppbótartíma.
Belgar fara í 8-liða úrslitin og mæta þar Spáni. Bandaríkin eru úr leik og kveðja þar með allir þrír nýliðarnir í 16-liða úrslitunum, en Kanada og Mexíkó höfðu áður tapað gegn Marokkó og Englandi.
Mikil umræða var fyrir leik um leikbann Folarin Balogun, lykilmanns Bandaríkjanna, en því var hnekkt af FIFA eftir að Donald Trump bað um endurskoðun á banninu. Hann gat því tekið þátt í leiknum. Framherjinn náði ekki að setja mark sitt á leikinn í dag.