Óskar Hrafn Þorvaldsson, einn besti knattspyrnuþjálfari Íslands, gjörsamlega hraunaði yfir FIFA og Donald Trump í HM kvöldi á RÚV í kvöld, hvar hann starfar sem sérfræðingur.
Gagnrýnin sneri að eins árs frestun á leikbanni Folarin Balogun, lykilmanni bandaríska landsliðsins, en hann átti að taka bannið út í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins gegn Belgíu í kvöld eftir að hafa fengið beint rautt spjald í síðasta leik gegn Bosníu.
Trump Bandaríkjaforseti hringdi hins vegar í félaga sinn og forseta FIFA, Gianni Infantino, og bað um endurskoðun á banninu. Það bar ofangreindan árangur og einn besti leikmaður Bandaríkjanna má því spila í kvöld.
Þetta hefur verið harðlega gagnrýnt, enda ákvörðunin algjörlega fordæmalaus. Aðrir leikmenn sem hafa fengið rautt spjald á mótinu hafa þurft að taka út sína refsingu í leiknum á eftir og aldrei í sögu HM hefur leikmaður fengið að spila næsta leik eftir að hafa fengið rautt spjald.
„Þetta er bara vandræðalegt. Ég veit að það sem ég segi hér er ekki að fara að verða til þess að Infantino taki sig saman í andlitinu og fari að haga sér eins og maður. Hann er löngu farinn yfir það sem eðlilegt telst. Hann er löngu farinn yfir til Svarthöfða og félaga, hann er bara farinn inn í myrkrið og verður ekki hleypt inn í ljósið aftur, sama hvað ég segi,“ sagði Óskar á RÚV og hélt áfram.
„Þetta er bara grín, þetta er vandræðalegt. Og þetta er sérstaklega vandræðalegt fyrir Bandaríkjamenn. Infantino er bara trúður, og var trúður fyrir, hangandi með öllum fyrirmennunum og sleikjandi rassgatið á ríku körlunum og áhrifaríku mönnumum. Bandaríkjamenn sitja auðvitað uppi með sinn eigin trúð, appelsínugulan trúð. Þarna eru tveir trúðar saman og það er ekkert sérstaklega gáfulegt. Þetta er vandræðalegt fyrir FIFA líka en kemur ekkert sérlega á óvart. Hann er búinn að vera að gera lítið úr þessu, 48 liða HM er ekki málið, hann er bara með dollaraseðlana í augunum. Þetta er enn eitt dæmið þar sem han er að gera lítið úr fótboltanum.“
Eiður Smári Guðjohnsen var einnig á meðal sérfræðinga og tók undir með Óskari.
„Þetta er bara skammarlegt og tekur burt trúverðugleika hjá FIFA. Hversu mikil áhrif Trump hafði á þetta, ég held við munum aldrei komast að því. En bara að þetta sé að gerast dregur þetta mót niður um 3-4 plön.“
Leikur Bandaríkjanna og Belgíu hefst nú á miðnætti. Belgar eru vægast sagt ósáttir við að Balogun hafi fengið leikheimild, og það með skömmum fyrirvara. Knattspyrnusamband Belga kveðst skoða þann möguleika að hefja málaferli ef svo fer að Balogun spili leikinn í kvöld.