Forsætisráðherra Bretlands, Keir Starmer, og utanríkisráðherrann Yvette Cooper komu að því að þrýsta á FIFA að færa ekki leik Englands og Mexíkó á HM síðastliðna nótt fram um sex klukkustundir.
Samkvæmt BBC hafði FIFA íhugað að flýta leiknum vegna spár um þrumuveður í Mexíkóborg. Bresk stjórnvöld og enska knattspyrnusambandið mótmæltu hins vegar breytingunni, meðal annars til að um 3 þúsund enskir stuðningsmenn misstu ekki af leiknum.
„Við þurftum að berjast með enska knattspyrnusambandinu til að halda leiknum á upphaflegum tíma,“ sagði Starmer.
Á endanum var leikurinn ekki færður framar í daginn en þurfti að fresta upphafsflautinu um klukkustund vegna veðurs.
England vann leikinn 3-2 og tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum HM.