Jurgen Klopp gagnrýndi harðlega ákvörðun FIFA um að fresta leikbanni Folarin Balogun um ár.
Balogun fékk rautt spjald gegn Bosníu og Hersegóvínu og átti að taka út eins leiks bann, en FIFA breytti banninu á þann veg að það verður skilorðsbundið fram á næsta sumar.
Helstu fréttamiðlar segja að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi hringt í forseta FIFA, Gianno Infantino, til að fá banninu hnekkt.
„Þetta er okkar leikur, ekki þeirra. Ef Trump og Infantino komu sér saman um þetta þá er það galið. Það setur allt í uppnám. Þessir tveir menn, sem vita ekkert um fótbolta, ættu ekkert að koma nálægt þessu,“ sagði Klopp.
Hann bætti við að þó rauða spjaldið hefði verið rangur dómur þá yrðu menn einfaldlega að lifa með mistökum dómara í knattspyrnu. Það er fordæmalaust að leikmaður þurfi ekki að taka út leikbann á HM eftir að hafa fengið rautt spjald í leiknum á undan.