Guillermo Ochoa hefur lagt skóna á hilluna eftir að Mexíkó féll úr leik á HM með tapi gegn Englandi í 16-liða úrslitum aðfaranótt mánudagsins.
Markvörðurinn, sem er 40 ára gamall, hafði fyrir mótið greint frá því að HM í sumar yrði hans síðasta með landsliðinu. Hafði hann misst sæti sitt í byrjunarliðinu en kom við sögu í lokaleik riðlakeppninnar gegn Tékklandi.
Hann lék alls 153 A-landsleiki fyrir Mexíkó, þar af 12 á heimsmeistaramótum. Vakti hann sérstaka athygli fyrir frábæra frammistöðu sína á mótinu 2014.
Ochoa lék í vetur á Kýpur. Hann hefur leikið fyrir lið á borð við Standard Liege, Malaga og Granada á löngum ferli. Flesta leiki á hann þó fyrir América í heimalandinu.