Atletico Madrid er komið langt í viðræðum um kaup á Lee Kang-in frá Evrópumeisturum Paris Saint-Germain.
Samkvæmt Fabrizio Romano hefur Lee þegar samið um eigin kjör við Atletico og eiga félögin nú aðeins eftir að ganga frá kaupverðinu.
PSG er sagt vilja fá um 35 milljónir evra fyrir suðurkóreska landsliðsmanninn, sem er 25 ára gamall og lék áður með Valencia og Mallorca, áður en hann gekk til liðs við PSG árið 2023. Hann þekkir því vel til í spænska boltanum.
Lee hefur skorað 16 mörk og lagt upp önnur 16 í 124 leikjum á árunum þremur í París.