433

England vill líka fá banni hnekkt

Mynd
Getty Images

Enska knattspyrnusambandið íhugar að áfrýja rauða spjaldinu sem Jarell Quansah fékk í 3-2 sigri á Mexíkó í 16-liða úrslitum HM.

Quansah var rekinn af velli fyrir glæfralega tæklingu á Jesus Gallardo og gæti jafnvel fengið tveggja leikja bann ef marka má fréttir.

Enska knattspyrnusambandið skoðar nú stöðuna eftir að FIFA frestaði leikbanni Folarin Balogun um eitt ár með vísan til sérstakrar greinar í agareglum sínum.

Ef Quansah verður úrskurðaður í tveggja leikja bann yrði það mikið áfall fyrir England, sem er þunnskipað í stöðu hægri bakvarðra vegna meiðsla Reece James.