433

England getur ekki kallað inn annan mann

Mynd
Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands. Getty Images

Enska landsliðið getur ekki kallað inn varamann fyrir Jordan Henderson, sem væntanlega af því sem eftir er af HM vegna meiðsla.

Henderson meiddist eftir 3-2 sigur Englands á Mexíkó í 16-liða úrslitum í nótt. Datt hann þegar hann stökk yfir auglýsingaskilti og þarf að fara í aðgerð vegna úlnliðsmeiðsla.

Reglur FIFA kveða á um að aðeins sé hægt að skipta út útileikmanni vegna meiðsla fram að sólarhring fyrir fyrsta leik þjóðarinnar á HM. England þarf því að klára mótið með 25 manna hóp.

Undantekning er aðeins gerð ef um alvarleg meiðsli eða veikindi markvarða er að ræða. 

Enska liðið ætti þó að ráða við fjarveru Henderson, enda hefur hann ekki spilað nema sex mínútur á mótinu til þessa.