433

Dramatískt sigurmark Merino - Ronaldo og félagar úr leik

Mynd
Getty Images

Spánverjar slógu Portúgal úr leik í stórleik í 16-liða úrslitum HM í kvöld. 

Leikurinn var heldur lokaður. Liðin áttu álitlegar sóknir en voru bitlaus fyrir framan markið.

Þegar leið á virtust Spánverjar líklegri til að finna mark en flestir héldu þó að leikurinn væri að fara í framlengingu þegar Ferran Torres renndi boltanum inn á Mikel Merino og hann skoraði í uppbótartíma.

Það reyndist sigurmarkið. Lokatölur 1-0 og Spánn mætir Bandaríkjunum eða Belgíu í 8-liða úrslitum.

Þess má geta að þetta var síðasti leikur Cristiano Ronaldo á HM, en hann hafði gefið út að þetta yrði hans síðasta mót.