Casemiro gat ekki haldið aftur af tárunum eftir óvænt 2-1 tap Brasilíu gegn Noregi í 16-liða úrslitum HM í gær.
Miðjumaðurinn var sýnilega niðurbrotinn í viðtali eftir leik og átti í erfiðleikum með að koma orðum að tilfinningum sínum.
„Það er erfitt að finna orð. Fyrirgefið. Það hefur alltaf verið draumur minn að vinna heimsmeistaramótið,“ sagði Casemiro, en spyrlarnir reyndu að hugga hann á meðan.
Casemiro kvaðst jafnframt þakklátur fyrir að hafa þrisvar fengið tækifæri til að spila með brasilíska landsliðinu á HM.
Þetta má sjá hér að neðan.
Casemiro: “It’s difficult. I only want to be with my family. We did our best, but we lost our dream… we disappointed all Brazilians”
“We will always be the generation that didn’t win the World Cup”. ❤️🩹😢@CazeTVOficial 🎥 pic.twitter.com/6OLod0Fnfq— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) July 6, 2026