Belgíska knattspyrnusambandið hefur ekki sagt sitt síðasta hvað varðar mál Folarin Balogun og leikbann hans.
Eftir símtal frá Donald Trump Bandaríkjaforseta hnekkti FIFA banni Balogun, sem hann átti að vera í gegn Belgum í 16-liða úrslitum HM í kvöld vegna rauða spjaldsins sem hann fékk gegn Bosníu í 32-liða úrslitunum.
Hann má því spila gegn Belgum, en ákvörðunin lá fyrir í gær. Belgíska sambandið áfrýjaði niðurstöðunni, enda Balogun hvað besti leikmaður bandaríska liðsins og liðið hafði undirbúið sig fyrir einvígi án hans undanfarna daga.
Áfrýjuninni var hafnað af FIFA en Belgar skora nú á bandaríska knattspyrnusambandið að tefla Balogun ekki fram í leik liðanna í kvöld. Í yfirlýsingu segja þeir að ella verði málið tekið lengra af þeirra hálfu í kjölfar leiksins.
„Þá kæmu allar aðgerðir til greina,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni.