433

Áfrýjun Belga vísað frá - Þetta eru rök FIFA

Mynd
Getty Images

FIFA hefur hafnað áfrýjun belgíska knattspyrnusambandsins varðandi leikbann Folarin Balogun.

Þar með verður Balogun löglegur með bandaríska landsliðinu gegn Belgíu í 16-liða úrslitum HM. Leikurinn hefst á miðnætti í kvöld að íslenskum tíma.

FIFA segir í yfirlýsingu að áfrýjun Belgíu hefði verið vísað frá þar sem belgíska knattspyrnusambandið ætti ekki aðild að málinu og hefði því ekki heimild til að kæra ákvörðunina.

Mál Balogun hefur vakið mikla athygli undanfarinn sólarhring. Framherjinn, sem er einn allra besti leikmaður bandaríska liðsins, fékk rautt spjald í síðasta leik gegn Bosníu og átti því með réttu að taka út leikbann í leik kvöldsins.

Dómurinn þótti þó harður og Donald Trump Bandaríkjaforseti beitti sér fyrir því í samskiptum við Gianni Infantino, forseta FIFA, að fá banninu hnekkt. Þess má geta að þeir eru miklir félagar.

Það bar árangur og er bannið nú aðeins skilorðsbundið til eins árs. Er ákvörðunin fordæmalaus í lokakeppni HM. 

Belgíska knattspyrnusambandið, sem og UEFA og fleiri tengjast fótboltanum, hafa gagnrýnt FIFA harðlega og telja að trúverðugleiki leiksins sé settur í hættu með þessu.

Áfrýjunin bar hins vegar ekki árangur sem fyrr segir.