Enzo Maresca, stjóri Chelsea, segist vera ‘ástfanginn’ af leikmanni liðsins sem heitir Josh Acheampong og spilar í vörninni.
Um er að ræða 18 ára gamlan strák sem hefur spilað níu leiki á tímabilinu en er í engu lykilhlutverki í dag.
Maresca er gríðarlega ánægður með viðhorf leikmannsins sem þekkir það best að spila sem hafsent en er vel opinn fyrir því að spila í öðrum stöðum.
,,Ég er ástfanginn af Josh Acheampong. Persónulega þá getur hann mögulega orðið lykilmaður og frábær þjónn fyrir Chelsea,“ sagði Maresca.
,,Hann getur leyst nokkrar stöður vel en það besta við hann er að hann er mjög opinn og vill læra. Bakvörður? Ekkert mál, hvað þarf ég að gera?“