Jermaine Jenas fyrrum leikmaður enska landsliðsins og Ellie Penfold eru skilin eftir 16 ár saman, ástæan er perraskapur hans í vinnunni.
Jenas var rekinn frá BBC í Bretlandi fyrir að klæmast í samstarfskonu sinni.
Jenas fór langt yfir strikið í þessum samtölum við konuna en hann hefur sjálfur játað upp á sig sökina.
,,Ég hætti ekki að hugsa um þessar myndir af þér þegar þú sendir þær. Þegar þær berast þá hugsa ég með mér… Loksins fæ ég að sjá þennan líkama,“ á Jenas að hafa sagt.
Nokkrum dögum seinna þá sagði konan Jenas að hún og vinkona sín ætluðu að skemmta sér á ströndinni og hafði hann þetta að segja:
,,Allt í lagi… Ég vil sjá þig í bikiní, þú getur ekki skammað mig fyrir það.“
Seinna sagði konan við Jenas að hún væri ekki hrifinn af því að senda myndir í gegnum síma og þá svaraði hann:
,,Ég veit það en þú veist hvernig þetta er þegar þú ert í burtu. Alveg frá því ég sá þig fyrst þá hef ég hugsað um þig.“
Seinna sendi Jenas konunni nektarmyndir en hún segist sjálf hafa verið í áfalli eftir ákveðin skilaboð stjörnunnar.
Jenas er fyrrum enskur landsliðsmaður og lék fyrir lið eins og Tottenham á sínum ferli.