Ríkharð Óskar Guðnason, dagskrárstjóri FM957, segir drauminn hafa ræst þegar hann var ráðinn sem dagskrárstjóri FM957 árið 2014. Í dag fóru hins vegar fram lyklaskipti á miðlinum þegar Rikki skipti um starf. Egill Ploder Ottósson mun taka við af Rikka, sem færir sig í Ensku úrvalsdeildina, sem Stöð 2 náði réttinum á. Þar mun hann sjá um dagskrárgerð og lýsingar ásamt Gumma Ben og fleiri fjölmiðlamönnum.
„Það er einfaldlega kominn tími á næsta leiðtoga, leiðtoga með nýjar og ferskar hugmyndir og leiðtoga sem getur gefið starfsfólki FM 110% aðhald alla daga vikunnar.
Þann aðila réði ég inn fyrir um 5 árum síðan, sennilega mín besta ákvörðun í starfi. Ég fékk ekki bara frábæran starfsmann í hendurnar heldur bróðirinn sem ég eignaðist aldrei. Hann er einfaldlega fullkominn í starfið og óska ég honum innilega til hamingju með það. Ég veit að hann mun skila því frábærlega eins og allt sem hann gerir.
Að sjálfsögðu fara fram lyklaskipti á FM957 eins og í helstu ráðuneytum enda FM í raun ráðuneyti.
Um leið þakka ég fyrir mig og hlakka til að mæta sem dagskrárgerðargómur á morgun eins og einn meðlimur FM95BLÖ myndi orða það,“ segir Rikki í færslu á Facebook.
Hann rifjar upp að þann 1. september árið 2014 var hann ráðinn dagskrárstjóri FM957, verkefni sem hann fékk upp í hendurnar sem hafði í raun verið draumur hans síðan hann tók fyrstu vaktina sína fyrir rúmum tveimur áratugum.
„Ég hef á þessum árum komið að fjölda þátta sem urðu að veruleika, tók sénsinn á ungum talentum sem komu annarsstaðar að lokuðum dyrum og það fólk blómstrar í dag annaðhvort hjá okkur eða annarsstaðar. Ég hét sjálfum mér því þegar ég tók við þessari stöðu að gefa ungu fólki tækifæri til þess að spreyta sig nákvæmlega eins og ég fékk tækifæri til, aðeins 18 ára gamall.
Ég tel mig hafa skapað að mestu leyti jákvætt og skemmtilegt andrúmsloft á þessum tíma og hlustað á fólkið sem hefur starfað á stöðinni.
Fyrsta sem góður maður kenndi mér þegar ég vissi lítið um stjórnun vinnustaðar væri að gefa starfsfólkinu rödd og hlusta á þeirra hugmyndir, fara eftir þeim mörgum og gefa þeim hrós fyrir það.“
Segir Rikki það ein bestu ráð sem hann hefu fengið.
Á þessum tæpu 11 árum sem dagskrárstjóri hefur hann sett á annan tug þátta í loftið, ráðið fjölda aðila og umturnað tónlistarstefnunni í allskonar áttir, og segir hann að það sem gerir starfið skemmtilegt er að alltaf þurfi að vera á tánum og þora að gera hluti sem aðrir eru ekki mögulega að gera.
„En allt hefur sinn tíma. Síðasta haust viðraði ég við Þórdísi Valsdóttur að ég væri farinn að skoða það að minnka við mig ábyrgð á FM og svo þegar það kom í ljós að Sýn hafi náð réttinum á Ensku úrvalsdeildinni vissi ég að það væri rétt ákvörðun. Mig langar að taka þátt í þeirri uppbyggingu eftir að hafa verið án hans síðustu 6 ár. Football is coming home!
Þess vegna hef ég ákveðið að stíga til hliðar sem dagskrárstjóri FM957. Ég mætti miklum skilningi yfirmanna minna við þá ákvörðun sem ég er afar þakklátur fyrir.
Hinsvegar eruð þið ekki laus við mig! Ég mun færa mig töluvert meira yfir í sportið því þar liggur mín helsta ástríða við lýsingar og ég mun áfram sinna dagskrárgerð á FM í Brennslunni, alla virka morgna. Ég ætla að gefa enn meira í varðandi dagskrárgerð þar sem ég get einbeitt mér eingöngu að því, að gera skemmtilegt útvarp og að sjálfsögðu verð ég á gólfinu með því og mun aðstoða eftirmann minn eins vel og ég mögulega get,enda ósk mín að sá aðili muni taka verkefnið áfram og setja stöðina á næsta level!“