Ísland byrjaði leikinn þokkalega en smátt og smátt tóku heimamenn yfir og kom Lumbardh Dellova þeim yfir á 19. mínútu eftir vandræðagang í vörn Íslands. Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson svaraði þó skömmu síðar með flottri afgreiðslu eftir frábæran undirbúning Ísaks Bergmann Jóhannessonar.
Strákarnir okkar náðu ekki að fylgja þessu eftir með betri spilamennsku úti á vellinum en staðan í hálfleik var 1-1. Seinni hálfleikur var vægast sagt slakur hjá íslenska liðinu og kom Elvis Rexhbejac Kósóvó yfir á ný á 58. mínútu. Meira var ekki skorað og 2-1 lokaniðurstaðan. Liðin mætast í seinni leik sínum, sem er skráður heimaleikur Íslands, á Spáni á sunnudag.
Hákon Rafn Valdimarsson – 5
Lítið út á hann að setja heilt yfir. Átti þó skógarhlaup sem hefði geta reynst dýrt.
Guðlaugur Victor Pálsson – 5
Allt í lagi leikur. Kom sér í fyrirgjafastöður sem hann nýtti ekki nógu vel.
Aron Einar Gunnarsson – 4
Oft á tíðum berskjaldaður til baka.
Sverrir Ingi Ingason – 5
Heilt yfir allt í lagi leikur hjá Sverri en vantaði töluvert upp á, eins og hjá fleirum.
Mikael Egill Ellertsson – 5
Komst þokkalega frá sínu í kvöld.
Ísak Bergmann Jóhannesson (65′) – 6
Átti mjög góðan fyrri hálfleik og gerði frábærlega í marki Orra Steins. Dró af honum í þeim seinni, þar til hann fór af velli.
Hákon Arnar Haraldsson – 4
Heilt yfir töluvert frá sínu besta. Tapaði boltanum á rándýran hátt í öðru marki Kósóvó.
Logi Tómasson – 4 (65′)
Var í brasi sóknar- og varnarlega.
Albert Guðmundsson (65′) – 5
Kom sér stundum í flottar stöður en heilt yfir kom of lítið úr honum.
Orri Steinn Óskarsson – 7 – Maður leiksins
Fínasti leikur hjá landsliðsfyrirliðanum og mark hans frábærlega afgreitt. Einn af fáum með lífsmarki í afar slökum seinni hálfleik Íslands.
Andri Lucas Guðjohnsen – 4
Oft á tíðum týndur í þessum leik.
Varamenn
Arnór Ingvi Traustason (65′) – 5
Stefán Teitur Þórðarson (65′) – 5
Jón Dagur Þorsteinsson (65′) – 6
Aðrir spiluðu of lítið til að fá einkunn