Fulham hefur staðfest að Willian sé genginn aftur í raðir félagsins á frjálsri sölu.
Þessi 36 ára gamli Brasilíumaður yfirgaf gríska liðið Olympiacos um áramótin, en hann fór til liðsins í sumar frá Fulham.
Nú er Willian hins vegar mættur aftur til Fulham og gerir samning fram á sumar. Liðið er í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar sem stendur.
Willian hefur einnig leikið fyrir Arsenal og Chelsea á Englandi eins og flestir vita.
Welcome back, Willian! 🤍
— Fulham Football Club (@FulhamFC) February 6, 2025