Víkingur R. mætir gríska liðinu Panathinaikos í umspili Sambandsdeildar Evrópu fimmtudaginn 20. febrúar klukkan 20:00. Leikurinn fer fram á Olympic Stadium í Aþenu.
Liðið sem tryggir sér áfram í kvöld fær 800 þúsund evrur frá UEFA eða 141 milljónir króna. Það væri góð búbót í rekstur Víkings.
Víkingur R. hafði betur í fyrri viðureign liðanna 2-1. Sigurvegari einvígisins tryggir sér sæti í 16 liða úrslitum og mætir þar annaðhvort Fiorentina eða SK Rapid.